UM OKKUR
Við erum tengdafeðgar með tæpa 70 ára starfsreynslu í byggingariðnaði á milli okkar, sem spannar yfir um 45 ára starfstímabil. Annar okkar er Húsasmíðameistari og byggingastjóri, hinn er Pípulagnarmaður. Auk þess höfum við báðir lokið námskeiðum í Raki og mygla í húsum ásamt framhaldsnámskeiði.
Saman höfum við því víðtæka reynslu á öllu því sem við kemur að ástandi og viðhaldi húsnæða og mannvirkja. Við höfum ávallt unnið okkar störf með fagmennsku í fyrirrúmi og er umhugað að hver íbúi viti nákvæmt ástand sinnar eignar.
Eftir mikla reynslu í iðnaði þá áttum við okkur á því að lélegt ástand fasteignar getur haft í för með sér alvarlegt heilsufars- og umhverfisleg áhrif og viljum við þá tryggja öryggi og heilsu manna eftir bestu getu.
Með okkar þjónustu fæst ítarlega unnin skýrsla, ef þess er óskað, og erum við með sama skýrslukerfi og flestar verkfræðistofur nota. Það kerfi er með auðskiljanlegri útlistun á ástandi með myndum og skýringarþáttum um galla og mögulega viðhaldsþörf.
ÞJÓNUSTULEIÐIR
VERÐLISTI
Öll verð eru með vsk inniföldum og miðast við fermetrafjölda við skráningu í Þjóðskrá.
FÓLKIÐ

Aðalsteinn Stefánsson
Húsasmíðameistari og Byggingastjóri
S: 891 7350

Rúnar S. Ólafsson
Pípulagningarmaður
S: 690 6906
ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR
Ég var mjög ánægður með þjónustuna og hún var í samræmi við okkar væntingar og óskir
Snorri Sindrason
Snöggskoðun
Við fengum tengdafeðgana til að ástandsskoða fasteign sem við höfum gert kauptilboð í og vorum hæstánægð. Þeir voru stundvísir, vandvirkir og útskýrðu allt á skýran og faglegan hátt. Skýrslan sem við fengum var ítarleg, greinargóð og mjög gagnleg fyrir áframhaldandi ákvörðunartöku. Mælum eindregið með þjónustunni og myndum hiklaust nota hana aftur
Gulli og Marín
Ástandsskoðun fasteigna
Í fyrsta lagi voru þið svo yndislegir í framkomu að það hálfa væri nóg. Svo rólegir og yfirvegaðir að fagmennskan kom mér í raun í opna skjöldu. Þið tókuð þessu svo alvarlega en voruð svo léttir og bara skemmtilegir á sama tíma. Skýrslan sem ég fékk frá ykkur er í raun meistaraverk út af fyrir sig. Ég óska öllum sem eru í minni stöðu að fá svona fagfólk í að skoða fyrir sig, þessir menn mættu á sunnudegi og skýrsluna fékk ég á mánudagskvöldi þar sem það lá á hjá mér. Ítarleg, skýr og afskaplega vönduð. Stórkostleg vinnubrögð í alla staði. Það fylgdu myndir og textar með hverju einasta atriði.
Ég tengist þessu fyrirtæki ekki neitt og hafði aldrei séð þessa menn áður. Fimm stjörnur af fimm mögulegum.
Hjördís Halla
Ástandsskoðun fasteigna
Við fengum Heil Hús til að framkvæma ástandsskoðun á einbýlishúsi sem við vorum að skoða til kaups. Frá upphafi voru samskiptin afburða góð – skjót svör við fyrirspurnum, fagleg framkoma og greinargóðar útskýringar á ferlinu.
Skoðunin sjálf fór fram á tilsettum tíma og var unnin af mikilli nákvæmni og fagmennsku. Skýrslan sem við fengum var ítarleg, vel uppsett og auðvelt að skilja hana, jafnvel fyrir okkur sem erum ekki sérfræðingar á þessu sviði. Hún gaf okkur skýra mynd af ástandi eignarinnar og hjálpaði til við að taka upplýsta ákvörðun um kaupin.
Við kunnum afar vel að meta hversu fagleg og skilvirk þjónustan var frá upphafi til enda og getum hiklaust mælt 100% með Heil Hús fyrir alla sem þurfa á traustri og faglegri ástandsskoðun að halda.
Ágúst Valur
Ástandsskoðun fasteigna
HAFA SAMBAND
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna út hvað virkar best fyrir þig!